Austurhöfn, breyting á deiliskipulagi
Austurhöfn (01.11)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 21
12. desember, 2018
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar. Í breytingunni felst að skipulagsreitur er minnkaður um 451 fm. við það að skipulagsmörk í Pósthússtræti eru færð nær lóðinni Austurbakka 2 þannig að þau liggja 3 metra frá lóðarmörkum, samkvæmt uppdr. Batterísins Arkitekta ehf. dags. 28. nóvember 2018. Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til Borgarráðs