Kvosin, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 21
12. desember, 2018
Annað
Fyrirspurn
Lögð er fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar. Í tillögunni felst breyting á afmörkun skipulagsins í samræmi við breytta afmörkun á skipulagi Austurhafnar. Breytingin  er tilkomin vegna þess að ráðgert er að gera gömlu Steinbryggjuna sýnilega og gera að torgsvæði, en svæðið skaraði tvenn skipulagsmörk, samkvæmt uppdr. Landmótunar, dags. 5. nóvember 2018. Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til Borgarráðs