Stækkun húss
Starengi 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 814
26. mars, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. febrúar 2021 var lögð fram umsókn Jóhanns Harðarsonar dags. 22. janúar 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Engjahverfis C hluta vegna lóðarinnar nr. 2 við Starengi. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit vegna viðbyggingar og hækkun hússins um eina hæð. Fyrirhugað er að byggja vindfang við inngang á jarðhæð og stigahús sem aðkomu að viðbyggingu á efri hæð, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf. dags. 19. janúar 2021, br. 10. mars 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Starengi 4, 6, 8, 26, 28 og 30 og Breiðavík 6, 8 og 10.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.