breyting á deiliskipulagi
Skálafell
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 716
15. febrúar, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Landslags ehf. dags. 8. febrúar 2019 ásamt greinargerð ódags. varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir skíðasvæðið í Skálafelli. Í breytingunni felst m.a. að fella út og sameina byggingarreiti fyrir skíðalyftur, færa byggingarreiti fyrir smáhýsi, minnka það svæði sem skilgreint er fyrir skíðabrekkur, fækka mögulegum bílastæðum o.fl., samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 14. febrúar 2019.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.