Nýtt geymsluhús (mhl.02)
Síðumúli 10
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 880
18. ágúst, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. apríl 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja geymslu sem verður mhl. 02, suðvestan megin við mhl. 01 og gera glugga á norðvesturhlið og suðvesturhlið húss á lóð nr. 10 við Síðumúla. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2022. Lagt fram að nýju ásamt lagfærðum uppdráttum dags. 9. júní 2022. Erindi var grenndarkynnt frá 15. júlí 2022 til og með 15. ágúst 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103798 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015191