Stálsvalir suðurhlið
37">Grettisgata 72
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 806
29. janúar, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. janúar 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. janúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til að koma fyrir léttum stálsvölum á íbúð 0201 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 72 við Grettisgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt. Gjald kr. 12.100
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Grettisgötu 70 og 74.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynninguna, sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102463 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011649