Reiðhjólaskýli - til bráðabirgða
Lækjargata 5 Menntaskólinn
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 804
15. janúar, 2021
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. janúar 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. desember 2020 þar sem sótt er um leyfi til þess að setja upp til bráðabirgða reiðhjólaskýli fyrir xx reiðhjól á lóð Menntaskólans í Reykjavík, nr. 5 við Lækjargötu og nr. 2B við Amtmannsstíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. janúar 2021.
Gjald kr. 11.200
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. janúar 2021.

Landnúmer: 101665 → skrá.is
Hnitnúmer: 10126356