breyting á deiliskipulagi
Úlfarsárdalur, reitur E
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 717
22. febrúar, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Bjargs Íbúðafélags hses. dags. 21. febrúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna Skyggnisbrautar 25-27 og 29-31, Gæfutjarnar 20-24 og 26-28 og Silfratjarnar 2-4. Í breytingunni felst að bæta við 10 bílastæðum, þar af eru 7 bílastæði staðsett ómerkt í göturými Silfratjarnar, samkvæmt uppdrætti umhverfis- og skipulagssviðs dags. 20. febrúar 2019.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 8.2 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.