breyting á deiliskipulagi
Úlfarsárdalur, reitur E
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 849
10. desember, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. desember 2021 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 30. nóvember 2021 um framkvæmdaleyfi fyrir 3. áfanga endurheimt votlendis á gömlum túnum í Úlfarsárdal, samkvæmt teikningum VSÓ ráðgjafar dags. 8. apríl 2021 og teikningu Verkís dags. 24. ágúst 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. desember 2021.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 10. desember 2021. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1472/2020.