breyting á deiliskipulagi
Úlfarsárdalur, reitur E
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 766
20. mars, 2020
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð er fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi fyrir Úlfarsárdal útivistarsvæði vegna 1.áfanga Korpulínu jarðstreng. Vegna breytinga á aðflutningskerfi Landsnets á milli tengivirkjanna við Korpu og á Geithálsi, þá er gert ráð fyrir tilfærslu á Korpulínu 1 og nýrri legu hennar í jarðstreng sem mun liggja meðfram Reynisvatnsvegi norðanmegin, um 30 m frá veginum milli hringtorgsins við Fellsveg og Lambhagaveg og einnig mun jarðstrengurinn liggja yfir dalinn og Úlfarsá austanmegin Lambhagavegar í Úlfarsárdal. Lagður verður nýr 132 kv jarðstrengur í stað núverandi loftlínu sem verður fjarlægð eftir spennusetningu strengsins, samkvæmt uppdr. VSÓ ráðgjafar dags. 16. desember 2019. Tillagan var auglýst frá 30. janúar 2020 til og með 12. mars 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Veitur dags. 12. mars 2020.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.