Kvistir, svalir, klæðning, breytingar inni o.fl.
Langholtsvegur 89
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 787
4. september, 2020
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. júní 2020 var lögð fram fyrirspurn Aflorku dags. 30. apríl 2020 um að setja svalir og svalahurð á austurhlið hússins á lóð nr. 89 við Langholtsveg, skipta út og breyta gluggum á suðurhlið hússins, setja skyggni/þakkant eins og er á húsinu á vesturhlið bílskúrs og loka fyrir glugga á norðurhlið hússins vegna klæðningar á bílskúr, samkvæmt skissu. Fyrirspurninni var frestað, fyrirspyrjandi hafi samband við embættið, og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4.september 2020.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4.september 2020 samþykkt.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104982 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015751