Sótt er um að setja svalir og tröppur í garð
Framnesvegur 13
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 869
19. maí, 2022
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. maí 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. maí 2022 þar sem sótt er um leyfi til þess að síkka glugga og bæta við hurð, koma fyrir svölum og tröppum á suðurhlið íbúðar 0201 í íbúðarhúsi á lóð nr. 13. við Framnesveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Brekkustíg 4, 4a, 4b og 6 og Framnesvegi 11, 11a og 15.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100316 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010654