framkvæmdarleyfi
Heiðmörk - vatnsverndarsvæði
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 839
1. október, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. september 21021 var lögð fram umsókn Veitna ehf. dags. 14. september 2021 um framkvæmdaleyfi vegna plægingar fyrir ljósleiðara á vatnsendasvæði í Heiðmörk. Einnig eru lagðar fram yfirlitsmyndir sem sýna staðsetningu ljósleiðara. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. október 2021.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 1. október 2021. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1472/2020.