4A - Breyta burðarvirki - klæðning
Brautarholt 4-4A
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 793
16. október, 2020
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. október 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. október 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja einnar hæðar viðbyggingu á bakhlið, stækka og síkka glugga og koma fyrir svölum á báðum hliðum, koma fyrir lyftu og innrétta 16 íbúðir á 2. - 4. hæð og verslun og sameiginlegt þvottahús á jarðhæð, einnig til að byggja einnar hæðar byggingu að lóðamörkum í austur og suður þar sem innréttuð verður hjólageymsla og geymslur íbúða með verönd á þaki á og við hús nr. 4, mhl. 01 á lóð nr. 4-4A við Brautarholt, samkvæmt uppdr. T.ark arkitekta ehf. dags. 21. febrúar 2017 síðast br. 12. október 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. og er nú lagt fram að nýju.
Erindi fylgir greinargerð hönnuðar um algilda hönnun dags. 21. febrúar 2017, samþykki meðlóðarhafa dags. 12., 13. og 18. maí 2020, bréf hönnuðar dags. 29. september 2020 og tillaga að nýju lóðarblaði mótt. 29. september 2020. Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. ágúst 2020 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2020 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 17. ágúst ágúst 2020. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2020.
Stækkun: 208,3 ferm., 604,7 rúmm. Eftir stækkun, A-rými: 1.182,8 ferm., 3.987,7 rúmm. B-rými: 18,8 ferm., 53,5 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2020 er samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Brautarholti 4 og 6, Skipholti 1, 3 og 5 og Mjölnisholti 12 -14, þegar lagfærðir uppdrættir hafa borist.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.