4A - Breyta burðarvirki - klæðning
Brautarholt 4-4A
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 619
3. febrúar, 2017
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. janúar 2017 var lögð fram fyrirspurn T.ark Arkitekta ehf., mótt. 19. desember 2016, um að setja svalir á norðurhlið hússins nr. 4A á lóð nr. 4-4A við Brautarholt, samkvæmt uppdr. T.ark Arkitekta ehf., dags. 16. desember 2016. Einnig er lagt fram bréf T.ark Arkitekta ehf., dags. 16. desember 2016. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Ekki er gerð athugasemd við erindið. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt berist hún.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.