breyting á deiliskipulagi
Frakkastígur - Skúlagata
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 798
20. nóvember, 2020
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi fyrir Frakkastíg - Skúlagata, varðandi fyrirhugaða nýbyggingu við Frakkastíg 1. Um er að ræða endurskoðun á gildandi deiliskipulagi og með þessari breytingu fellur því úr gildi eldra skipulag sem var samþykkt í borgarráði Reykjavíkur þann 7. júní 2018, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf. dags. 2. apríl 2020 br. 16. nóvember 2020. Tillagan var auglýst frá 20. maí 2020 til og með 1. júlí 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Benóný Ægisson f.h. Íbúasamtaka Miðborgar Reykjavíkur dags. 30. júní 2020 og Björgvin Þórðarson hrl. hjá Atlas lögmönnum ehf. f.h. húsfélagsins að Skúlagötu 20, dags. 30. júní 2020. Einnig er lögð fram umsögn Veitna dags. 1. júní 2020, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 2. júlí 2020 og 10. nóvember 2020 og fornleifaskrá Borgarsögusafns Reykjavíkur, skýrsla nr. 206, dags. 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. júlí 2020 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.