beiðni um lóðir fyrir sértæk húsnæðisúrræði
Hverafold 7
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 697
7. september, 2018
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. júní 2018 var lagt fram bréf velferðarsviðs dags. 28 maí 2018 þar sem velferðarsvið felur umhverfis- og skipulagssviði að kanna hvort hægt sé að koma fyrir sex einstaklingsíbúðum fyrir einstaklinga með þroskahömlun og skyldar raskanir á lóðinni Hverafold 7. Einnig er lögð fram greinargerð velferðarsviðs dags. 21. júní 2017 með tillögum um uppbyggingu sértækra húsnæðisúrræða fyrir fatlað fólk. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að vinna breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.

112 Reykjavík
Landnúmer: 110377 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021605