framkvæmdaleyfi
Rauðavatn
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 796
6. nóvember, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. október 2020 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 23. október 2020 um framkvæmdaleyfi vegna fullnaðarfrágangs á göngu- og reiðstíg við Rauðavatn ásamt fullnaðarfrágangs á stíglýsingu meðfram göngu- og reiðstígum. Einnig er lagt fram teikningasett VSÓ ráðgjafar dags. í október 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. nóvember 2020.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 6. nóvember 2020. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.