framkvæmdaleyfi
Reynisvatnsás, malarstígur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 892
10. nóvember, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. nóvember 2022 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 31. október 2022 um framkvæmdaleyfi vegna gerðar malarstígs fyrir neðan Reynisvatnsáshverfis og uppúr Reynisvatnshverfinu. Einnig lagðir fram uppdr. VSÓ ráðgjafar og Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar dags. 13. apríl 2022, br. 7. nóvember 2022. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember 2022.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember 2022. Vísað til skrifstofu stjórnsýslu og gæða til útgáfu framkvæmdaleyfis.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022.