framkvæmdaleyfi
Hlemmur og nágrenni
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 873
20. júní, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 13. júní 2022 um framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar götuhluta Laugavegs sem liggur frá Hlemmi að Snorrabraut í samræmi við framkvæmdamörk á yfirlitsteikningu. Endurnýja á núverandi fráveitulögn með tvöföldu kerfi regnvatns og skolps. Fyrirliggjandi heimæðar og niðurföll tengd nýja kerfinu auk nýrra svelgja í regnbeðum. Hluti hitaveitulagna í götustæði endurnýjaðar. Einnig verður götukassi endurnýjaður og gengið frá gróðurbeðum blágrænna lausna, nýrri hellulögn í gang- og götustæði, nýju snjóbræðslukerfi undir hellulögn og fæðistrengjum rafmagns í jörðu sem verða tengdir bráðabirgðagötulýsingu.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.