framkvæmdaleyfi
Hlemmur og nágrenni
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 868
13. maí, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. maí 2022 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 3. maí 2022 um framkvæmdaleyfi vegna áfanga 2A sem tengist nýju torgsvæði Hlemms og nágrennis. Framkvæmdin gengur út á endurgerð lagna og yfirborðs Rauðarárstígar norðan Hverfisgötu. Einnig er lagt fram teikningasett VSÓ ráðgjafar dags. í maí 2022 og yfirlitsmynd ódags. er sýnir áfangaskiptingu framkvæmdarinnar. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2022.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2022 . Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021.