breyting á deiliskipulagi
Malarhöfði 6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 860
11. mars, 2022
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. febrúar 2022 var lögð fram umsókn Kristjáns Ásgeirssonar dags. 8. febrúar 2022 ásamt bréfi dags. 8. febrúar 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Bíldshöfða - Sævarhöfða vegna lóðarinnar nr. 6 við Malarhöfða. Í breytingunni felst heimild til að hækka viðbyggingu og nýr byggingarreitur fyrir skýli á suðurhluta lóðar, samkvæmt uppdr. ALARK arkitekta ehf. dags. 9. mars 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Malarhöfða 2, 2a og 8.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110557 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020797