breyting á deiliskipulagi
Starhagi 11
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 887
6. október, 2022
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. september 2022 var lögð fram umsókn umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar dags. 21. september 2022, um breytingu á deiliskipulagi Starhaga-Þormóðsstaðavegar vegna lóðarinnar nr. 11 við Starhaga. Í breytingunni sem lögð er til felst stækkun lóðarinnar ásamt stækkun á leikskólanum Sæborg, samkvæmt uppdr. A arkitekta dags. 19. september 2022. Einnig er lagt fram bréf A arkitekta dags. 19. september 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.
Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1051/2022.

107 Reykjavík
Landnúmer: 172828 → skrá.is
Hnitnúmer: 10059747