(fsp) íbúðir í skammtímaleigu
Aðalstræti 7 og Vallarstræti 4
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 843
28. október, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. september 2021 var lögð fram fyrirspurn THG Arkitekta ehf. dags. 7. september 2021 ásamt bréfi dags. 16. ágúst 2021 vegna uppbyggingu á Landsímareit nánar tiltekið á lóðunum nr. 7 við Aðalstræti og 4 við Vallarstræti, en óskað er eftir að heimilt verði að skilgreina íbúðirnar í húsunum sem íbúðir í skammtímaleigu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. október 2021.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. október 2021, samþykkt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100856 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006310