Djúpgámar
Súðarvogur 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 785
21. ágúst, 2020
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. ágúst 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. júlí 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja sex hæða fjölbýlishús með 16 íbúðum, fjórum atvinnurýmum og bílgeymslu fyrir 16 bíla sem verður Kuggavogur 26 á lóð nr. 2 við Súðarvog. Erindi var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. ágúst 2020.
Erindi fylgir greinargerð aðalhönnuðar, brunahönnun frá Brunahönnun slf. , dags. 21. júlí 2020 og hljóðvistarskýrsla frá Hljóðtæknilausnir dags. 25. júní 2020. Stærð mhl. 01, A-rými: 2.349 ferm., B-rými: 100,2 ferm
Mhl. 01 samtals: 2.449,2 ferm., 6.967,5 rúmm. Mhl. 02, djúpgámar: 22,1 ferm., 62 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 19. ágúst 2020. Samræmist ekki deiliskipulagi.