ósk um breytingu á skilmálum deiliskipulags
Hlíðarendi, reitur I
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 695
24. ágúst, 2018
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Kristjáns Ásgeirssonar dags. 9. maí 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda. Breytingin felst í breyttu orðalagi og kvöðum er varða landnotkun á lóð A á skipulagssvæðinu. Lóð A verður blönduð íbúða- og atvinnuhúsalóð eftir breytingu í stað hreinnar atvinnuhúsalóðar. Að auki viðbót er varðar heimild fyrir leikskólastarfssemi á reitnum með leiksvæði í inngarði, samkvæmt uppdr. ALARK Arkitekta ehf. dags. 1. júní 2018. Einnig er lögð fram greinargerð ALARK arkitekta ehf. dags. 8. maí 2018. Tillagan var auglýst frá 6. júlí 2018 til og með 17. ágúst 2018. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Lex lögmannsstofa f.h. Dalhúss ehf. dags. 17. ágúst 2018.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.