ósk um breytingu á skilmálum deiliskipulags
Hlíðarendi, reitur I
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 660
1. desember, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn ALARK arkitekta ehf. , mótt. 22. ágúst 2017, ásamt bréfi, dags. 22. ágúst 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda. Í breytingunni felst að fjölga íbúðum á reitum C, D og F í samræmi við breyttan aðalskipulagstalnagrunn, breyta skilmálum er varða svalaganga á íbúðareitum C, D og F, breyta skilmálum fyrir reit H, gera ný gatnamót, Valshlíð tengist við Nauthólsveg, og textabreyting/viðbót í skilmálum er varðar heimild fyrir matvöruverslanir á skipulagssvæðinu, samkvæmt uppdr. ALARK arkitekta ehf. , dags. 14. september 2017. Tillaga var auglýst frá 9. október 2017 til og með 24. nóvember 2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar