skipulagslýsing vegna breytingu á aðalskipulagi
Kópavogur, Vatnsendahvarf-Vatnsendahæð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 820
14. maí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. maí 2021 var lagt fram bréf Kópavogsbæjar dags. 27. apríl 2021 þar sem óskað er eftir umsögn Reykjavíkurborgar á skipulagslýsingu dags. 25. mars 2021 fyrir gerð nýs deiliskipulags í Vatnsendahvarfi. Skipulagslýsingin nær yfir óbyggt svæði á Vatnsendahæð þar sem gert er ráð fyrir íbúðabyggð í nýju aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 sem nú er í kynningu. Óskað er eftir að umsögn berist fyrir 25. maí 2021. Erindinu var vísað til umsagnar deildarstjóra aðalskipulags og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn deildarstjóra aðalskipulags dags. 14. maí 2021.
Svar

Umsögn deildarstjóra aðalskipulags, dags. 14. maí 2021, samþykkt.