breyting á deiliskipulag
Eggertsgata, stúdentagarðar
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 876
7. júlí, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Félagsstofnunar stúdenta dags. 18. febrúar 2022 um nýtt deiliskipulag fyrir stúdentagarða að Eggertsgötu. Svæðið afmarkast af Suðurgötu til vesturs, Eggertsgötu til norðurs og byggð og opnu svæði til austurs og suðurs. Megin aðkoma að svæðinu er frá Eggertsgötu en einnig frá Suðurgötu. Nýtt deiliskipulag gerir ráð fyrir nýrri viðbyggingu við leikskóla, þjónustu- og félagshúsi ásamt stækkun á hverfisverslun, samkvæmt greinargerð Arkþings/Nordic ehf. dags. 18. febrúar 2022 og deiliskipulags- og skýringaruppdr. Arkþing/Nordic ehf. ódags. Einnig er lögð fram fornleifaskrá og húsakönnun Borgarsögusafns Reykjavíkur, skýrsla nr. 220. Tillagan var auglýst frá 18. maí 2022 til og með 4. júlí 2022. Eftirfarandi sendu umsagnir: Veitur dags. 24. júní 2022 og Minjastofnun Íslands dags. 4. júlí 2022.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.