Reyndarteikningar
Baldursgata 24A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 834
27. ágúst, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. júní 2021 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í að stærðir hafa verið uppfærðar, kalt þak hefur verið byggt ofan eldra þak bakhúss, mhl. 01, og því breytt í íbúðarrými, einnig hefur aðalinngangur verið færður til, stiga í forhúsi og innra skipulagi breytt í íbúðarhúsi, mhl. 02, á lóð nr. 24A við Baldursgötu. Erindi var grenndarkynnt frá 15. júlí 2021 til og með 16. ágúst 2021. Engar athugasemdir bárust . Einnig er lagður fram tölvupóstur Guðlaugar Teitsdóttur dags. 16. júlí 2021 þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við erindið.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. apríl 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. apríl 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 19. apríl 2021. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 8. maí 2021 og húsaskoðun Byggingarfulltrúa dags. 6. maí 2021 og bréf frá hönnuði dags. 15. mars 2021. Stækkun: Mhl. 01, íbúðarhús: 7.9 ferm., 12.1 rúmm. Mhl. 02, bakhús: 13.9 ferm., 42.1 rúmm. Gjald kr. 12.100
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102238 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007561