(fsp) hækkun þaks, kvistir og þakgluggi
Tómasarhagi 27
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 881
25. ágúst, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. ágúst 2022 var lögð fram fyrirspurn Ágústs Hafsteinssonar, dags. 9. ágúst 2022, um að hækka þak hússins á lóð nr. 27 við Tómasarhaga og koma fyrir tveimur nýjum þakkvistum, auk þakglugga. Einnig lagt fram forsaga málsins ásamt fylgiskjölum. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. ágúst 2022.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. ágúst 2022 samþykkt.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106570 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023629