breyting á skilmálum deiliskipulags
Hverfisgata 46
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 769
17. apríl, 2020
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. desember 2019 var lögð fram fyrirspurn Þingvangs ehf. dags. 3. desember 2019 ásamt bréfi dags. 2. desember 2019 varðandi rekstur gististaðar í húsinu á lóð nr. 46 við Hverfisgötu, samkvæmt tillögu Arkþings - Nordic ehf. ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. janúar 2020. Jafnframt er lögð fram leiðrétt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2020.
Svar

Leiðrétt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2020 samþykkt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101430 → skrá.is
Hnitnúmer: 10001197