(fsp) loftgæðamælir
Laugarnes
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 810
26. febrúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. desember 2020 var lögð fram fyrirspurn Kanon arkitekta ehf. f.h. Faxaflóahafna dags. 24. nóvember 2020 ásamt bréfi dags. 24. nóvember 2020 um að staðsetja loftgæðamæli í Laugarnesi á afgirtum reit á borgarlandi, samkvæmt uppdrætti Kanon arkitekta ehf. dags. 23. nóvember 2020. Einnig er lagður fram uppdráttur Mannvits dags. 5. júní 2020, minnisblað Faxaflóahafna ódags., minnisblað verkfræðistofunnar Vatnaskil dags. 4. júní 2020 og kort sem sýnir núverandi stöðu fornleifa ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. febráur 2021.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. febrúar 2021 samþykkt.