(fsp) stækkun húss
Bauganes 3A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 879
11. ágúst, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. júní 2022 var lögð fram fyrirspurn Silju Bjargar Halldórsdóttur, Höllu Ruth Halldórsdóttur og Guðrúnar Ruth Viðarsdóttur, dags. 13. júní 2022 um stækkun hússins á lóð nr. 3A við Bauganes, samkvæmt skissu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. ágúst 2022.
Svar

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 8. ágúst 2022 eru ekki gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.

102 Reykjavík
Landnúmer: 106799 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006907