breyting á deiliskipulagi
Suður Mjódd
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 604
7. október, 2016
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. júlí 2016 var lögð fram umsókn SEA vegna lóðar ÍR, íþróttafélags dags. 29. júní 2016 varðandi breytingu á deiliskipulagi Suður-Mjóddar. Í breytingunni felst breyting og stækkun á byggingareit á lóð ÍR vegna þjónustuhúss við frjálsíþróttavöll. Lagnakvöðum er breytt á tveimur stöðum og íbúðum er fjölgað á lóðum Árskógar 1-3 og 5-7, samkv. uppdr. teiknistofunnar Storð dags. 28. júní 2016. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt uppfærðum uppdr. teiknistofunnar Storð ehf. , dags. 7. október 2016.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.
Vakin er athygli umsækjanda á að erindið fellur undir gr. 7.5 í Gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.