(fsp) losun jarðvegsefnis úr lóðum nýbygginga
Hólmsheiði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 673
16. mars, 2018
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Landslags ehf. dags. 28. febrúar 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hesthúsabyggðar á Hólmsheiði, Almannadal. Í breytingunni felst að skipta núverandi lóðum við Fjárgötu og Vegbrekku í minni einingar þannig að eitt hús er á hverri lóð, við Vegbrekku 7 er gert ráð fyrir lítilli reiðskemmu í stað eins hesthúss og sú lóð stækkuð, kvöð um lagnaleið að nýjum lóðarmörkum og fært er til eitt hringerði til samræmis við staðsetningu í raun vestan við Vegbrekku 7, samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 16. febrúar 2018. Einnig eri lagðar fram fundargerðir Stjórnarfundar Fáks frá 8. og 29. janúar 2018 og 12. febrúar 2018.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.