breyting á deiliskipulagi
Bólstaðarhlíð 20
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 694
17. ágúst, 2018
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 14. júní 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð nr. 20 við Bólstaðarhlíð, Ísaksskóli. Í breytingunni felst að afmarkaður er byggingarreitur fyrir eina færanlega kennslustofu á einni hæð, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 30. maí 2018. Tillagan var grenndarkynnt frá 21. júní 2018 til og með 19. júlí 2018. Eftritaldir aðilar sendu athugasemdir: Skúli Sveinsson hdl. dags. 17. júlí 2018. og Halldóra Lísa Bjargardóttir f.h. húsfélags Bólstaðarhlíðar 26 dags. 20. júlí 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. júlí 2018 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs

105 Reykjavík
Landnúmer: 103628 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008421