breyting á deiliskipulagi
Blikastaðavegur 2-8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 830
21. júlí, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Arkís Arkitekta ehf. dags. 8. október 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 2-8 við Blikastaðaveg. Í breytingunni felst að leiðrétta lóðastærð, bæta við tveimur byggingarreitum og auka byggingarmagn um 12.500 m2. Þá eru bílastæðakröfur uppfærðar. Við útfærslu bygginga skal gæta að heildar samræmi á lóðinni og ásýndum bygginga og brjóta upp lengd húshliðar sem vísa að Vesturlandsvegi. samkvæmt uppdr. Arkís Arkitekta ehf. dags. 5. október 2020. Tillagan var auglýst frá 4. júní 2021 til og með 16. júlí 2021. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar