(fsp) breyting á deiliskipulagi
Grensásvegur 3-7
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 868
13. maí, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. maí 2022 var lögð fram fyrirspurn Krads ehf. dags. 24. febrúar 2022 um breytingu á deiliskipulagi Skeifunnar vegna lóðarinnar nr. 3-7 við Grensásveg sem felst í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á lóð í samræmi við rammaskipulag, samkvæmt tillögu dags. 15. febrúar 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2022.
Svar

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2022 eru ekki gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað.

108 Reykjavík
Landnúmer: 105664 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011520