breyting á deiliskipulagi vegna Arnarbakka
Breiðholt I, Bakkar
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 844
5. nóvember, 2021
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Breiðholts I vegna Arnarbakka. Breytingin felst í heimild til niðurrifi á núverandi verslunar og þjónustuhúsnæði í Arnarbakka 2-6, uppbyggingu námsmannaíbúða með verslunar- og þjónusturýmum að hluta til á 1. hæð auk íbúðarhúsnæðis á grænni þróunarlóð, gróðurhúss og endurbætur á grænu svæði, samkvæmt uppdr. BASALT arkitekta ehf. dags. 9. júní 2021. Einnig er lögð fram húsakönnun Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 26. júní 2020 og samgöngumat Mannvits dagsett 9. júní 2021. Tillagan var auglýst frá 7. júlí 2021 til og með 31. ágúst 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Guðmundur Svafarsson dags. 21. júní 2021, Veitur dags. 18. ágúst 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. september 2021 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.