forsögn fyrir endurskoðað deiliskipulag.
Gufunes, útivistarsvæði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 860
11. mars, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. febrúar 2022 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 18. febrúar 2022 um framkvæmdaleyfi vegna lagningu göngustígs milli Jöfursbáss og strandvegar í Gufunesi, auk tveggja tröppustíga, samkvæmt teikningahefti Verkís dags. í desember 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. mars 2022.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. mars 2022. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021.