forsögn fyrir endurskoðað deiliskipulag.
Gufunes, útivistarsvæði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 743
13. september, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er nú lögð fram að nýju umsókn Yrki arkitekta ehf. dags 27. júní 2019, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Gufunes vegna lóðarinnar nr. 11 við Jöfursbás. Í breytingunni felst stækkun lóðarinnar úr 4771 m2 í 5641 m2. Ekki er gert ráð fyrir að byggt verði neðanjarðar, hámarks byggingarhæð verði lækkuð úr 7 hæðum í 5 hæðir, fallið verði frá kröfu um bílastæði á lóð, bílastæðaþörfin er reiknuð út sem 1 stæði per 120m2 íbúðarhúsnæðis, gert er ráð fyrir minni íbúðum en tilgreint er í almennum skilmálum, aðkoma neyðarbíla og lestunar/losunar bíla innan lóðar verði tryggð, gert verði ráð fyrir djúpgámum á lóðinni, gert verði ráð fyrir allt að 130 íbúðum á lóðinni, lóðarmörk verði færð 7m vestur og 15,8m til suðurs og fl. ásamt skilmálabreytingum samkvæmt uppdrætti Yrki arkitekta ehf. dags 27. júní 2019. Tillagan var auglýst frá 24. júlí 2019 til og með 4. september 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar