forsögn fyrir endurskoðað deiliskipulag.
Gufunes, útivistarsvæði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 729
24. maí, 2019
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Fjöreflis ehf. dags. 17. maí 2019 ásamt greinargerð verkfræðistofunnar Efla dags. 20. maí 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Gufuness. Í breytingunni felst m.a. að byggingareitir eru stækkaðir umtalsvert innan afnotasvæðis, gólfkóti bygginga hækkaður um 2 m, úr 19 í 21 m. Byggingarmagn aukið um 600 fm. og bráðabirgðareitur sameinaður nýjum byggingareit og heimilt er að vera með allt að 30 smáhýsi á afnotasvæðinu, hámarksstærð að grunnfleti 45 fm hvert hús, hámarkshæð í mæni húss 5,5 m frá gólfkóta o.fl. Sjá nánar uppdrætti verkfræðistofunnar Efla dags. 20. maí 2019.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.