breyting á deiliskipulagi vegna Tangarbryggju 6-8, 10, 12 og 12A og Naustabryggju 17-19 og 31-33
Bryggjuhverfi við Grafarvog
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 765
13. mars, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. febrúar 2020 var lögð fram umsókn Arkís arkitekta ehf. dags. 30. janúar 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Bryggjuhverfis vestur, svæði 4. Í breytingunni felst að heimila fyrstu hæð í íbúðarhúsum á lóðum A og B að fylgja götuhæð, eða þannig að ekki þurfi að lyfta þeim 0,5-1,2 m þar sem ekki er reiknað með kjallara undir húsum. Byggingarreitir á lóð A lengjast og fara úr 31 metra í 32 metra, svæði fyrir djúpgáma færist til á lóðum A og B og hæð og þakformi norðvestasta hússins breytist óverulega, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 30. janúar 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Tangabryggja 10, 12 og 12A.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.