breyting á deiliskipulagi
Jöklasel 4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 694
17. ágúst, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 31. maí 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Jöklasels 2 og 4 vegna lóðarinnar nr. 4 við Jöklasel. Í breytingunni felst að gerður er nýr byggingarreitur fyrir tvær færanlegar stofur í norðvesturhluta lóðarinnar, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 31. maí 2018. Tillagan var auglýst frá 29. júní 2018 til og með 10. ágúst 2018. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

109 Reykjavík
Landnúmer: 113281 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023243