breyting á deiliskipulagi
Vesturgata 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 810
26. febrúar, 2021
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Davíðs Kristjáns Chatham Pitts dags. 18. febrúar 2021 um að gera matarmarkað og veitingarþjónustu (mathöll) í húsinu á lóð nr. 2 við Vesturgötu með 10-12 básum í kjallara og á 1. og 2. hæð hússins ásamt starfsmannaðstöðu, skrifstofum o.fl. í risi. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. febrúar 2021.
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. febrúar 2021.

Landnúmer: 100815 → skrá.is
Hnitnúmer: 10003692