Fjölbýlishús - S4 - S8, 102 íbúðir, verslun- og þjónusta auk bíla- og geymslukjallara.
Seljavegur 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 793
16. október, 2020
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 25. september 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. september 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús á sex hæðum, mhl-05, á reitum S4-S8, samtals 102 íbúðir, verslunar- og þjónusturými á 1. hæð og bíla- og geymslukjallara á lóð nr. 2 við Seljaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2020.
Erindi fylgir greinagerð Mannvits um hljóðvist, útg. 1.0, dags. 25. ágúst 2020, lóðauppdráttur dags. 19. ágúst 2019, hæðablað dags. 4. mars 2020 og forteikningar hönnuða dags. 25. ágúst 2020. Einnig minnisblað frá hönnuði og varmatapsútreikningar dags. 3. september 2020, brunahönnun frá Brunahönnun slf. , dags. 3. september 2020, minnisblað Eflu um fjölda bílastæða á Seljavegi 2 dags. 8. júní 2020 og samþykki eigenda dags. 25. ágúst 2020, greinagerð lóðahönnuðar ódagsett, minnisblað hönnuða um breidd bílastæða dags. 17. september 2020, ódagsett bréf hönnuðar með yfirliti yfir breytingar og minnisblað hönnuðar vegna aðkomu viðbragðsaðila á byggingartíma dags. 17. september 2020. Stærðir: 10.268,3 ferm., 34.402,0 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2020 samþykkt.