(fsp) breyting á notkun bílskúrs
Njálsgata 15A
Síðast Synjað á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 811
5. mars, 2021
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. febrúar 2021 var lögð fram fyrirspurn Jóns Davíðs Davíðssonar dags. 16. febrúar 2021 ásamt bréfi dags. 13. janúar 2021 um að breyta bílskúr á lóð nr. 15A við Njálsgötu í íbúð, samkvæmt tillögu og þrívíddarmyndum ódags. Einnig er lagt fram samþykki hluta eigenda að Njálsgötu 15A. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. mars 2021.
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 2. mars 2021.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101843 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023373