framkvæmdaleyfi
Öskjuhlíð, Perlan
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 868
13. maí, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. apríl 2022 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 25.apríl 2022 um framkvæmdaleyfi vegna lagningu göngustígs í Öskjuhlíð umhverfis Perluna. Einnig er lagt fram minnisblað hönnuða um frumdrög að útfærslu dags. 21. október 2021, kynning dags. 16. desember 2021, umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 18. mars 2022, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 9. maí 2022 og greinargerð umhverfis- og skipulagssviðs dags. 10. maí 2022. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2022.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2022 . Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021.