Viðbygging - Blóðbankinn
Snorrabraut 60
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 840
8. október, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Helga Konráðs Thoroddsen, dags. 25. júní 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Heilsuverndarreits vegna lóðarinnar nr. 60 við Snorrabraut. Í breytingunni felst að nýr byggingarreitur kemur fyrir einnar hæðar viðbyggingu við bakinngang á vesturhlið núverandi byggingar, nýr afgirtur köfnunarefnistankur kemur við norðurgafl núverandi húss og tvö bílastæði með afkomu um Egilsgötu eru talin með til bílastæðabókhalds, samkvæmt uppdr. Kanon arkitekta dags. 22. júní 2021, br. 16. ágúst 2021. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. september 2021 til og með 5. október 2021. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.